Allir sjóðir
Finndu sjóðinn
Sjóðurinn ræðst af vinnustaðnum og stéttarfélaginu. Ef þú ert ekki viss, byrjaðu á „Hvaða sjóður á við?“.
Sæktu um á réttum stað
Einstaklingar sækja um hjá sínu stéttarfélagi. Vinnustaðir sækja annarsvegar um í gegnum Áttina til Lands-og Sjómenntar og hinsvegar beint til Ríkis-og Sveitamenntar.
Skilaðu gögnum og fáðu greitt
Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða. Styrkurinn er hlutfall af kostnaði, innan árlegs hámarks sem hver sjóður setur og er greiddur út í umboði sjóðsins.
Sæktu um hjá þínum sjóði. Stéttarfélög sinna afgreiðslu umsókna í umboði sjóðsins. Með umsókninni þarf að fylgja greiddur reikningur (ekki eldri en 12 mánaða) og greiðslustaðfesting. Greiðslukvittun úr heimabanka ein og sér nægir ekki.
Hlutfall, árlegt hámark og hvað telst styrkhæft er á síðu hvers sjóðs. Opnaðu umsóknargátt viðeigandi sjóðs til að sjá umsóknarferli og reglur.
Fyrirtæki á almennum vinnumarkaði sækja um í gegnum Áttina til Lands-og Sjómenntar. Stofnanir og sveitarfélög sækja um beint til Ríkis-og Sveitamenntar.
Betra að staðsetja sig áður en eyðublaðið er fyllt út.