
Allir sjóðir
Ný regla um styrki til fræðslusafna og stafrænnar fræðslu RM SM og SJM
24. júlí 2026

Starfsmenntasjóðir
Stuðningur við nám og starfsþróun á landsbyggðinni
Nýjustu fréttir
Sjóðirnir eru reknir í samstarfi stéttarfélaga innan Starfsgreinasambands Íslands og atvinnurekenda á almennum vinnumarkaði, ríki og sveitarfélögum. Hlutverk þeirra er að úthluta styrkjum til starfsmenntunar, endurmenntunar og hæfniþróunar. Með þeim hætti er starfsfólki og vinnustöðum gefin tækifæri til vaxtar og framþróunar
21
Aðildarfélög milli sjóða
40
fyrirtæki og stofnanir fengu styrk árið 2025
20
Fræðslustjóri að láni verkefni árið 2025
10%
aukning í úthlutuðum styrkjum milli ára
Sjóðirnir greiða hluta af kostnaði við nám og námskeið. Hlutfallið og árlegt hámark fer eftir sjóðnum og reglum hans.
Ferlið er það sama hjá öllum sjóðunum fjórum, hvort sem umsóknin kemur frá þér eða vinnustaðnum.
Finndu sjóðinn þinn
Sjóðurinn ræðst af starfsgrein og stéttarfélagi sem þú tilheyrir. Listinn hér að neðan sýnir hvaða sjóður á við.
Sæktu um
Einstaklingar sækja um hjá sínu stéttarfélagi og skila umsókn ásamt reikningi og greiðslustaðfestingu innan 12 mánaða frá dagsetningu reikningsins. Vinnustaðir sækja um í gegnum Áttina.
Fáðu greitt
Styrkurinn nemur hlutfalli af reikningnum, innan árlegs hámarks sem hver sjóður setur, og er greiddur út í umboði sjóðsins.
Hver sjóður þjónar ólíkum starfshópum. Finndu þann sjóð sem á við um starf þitt eða vinnustað.
Starfsfólk og atvinnurekendur t.d. í iðnaði, verslun og þjónustu
Fyrir starfsfólk og fyrirtæki á almennum markaði á landsbyggðinni.
Starfsfólk og stofnanir ríkisins
Fyrir starfsfólk og stofnanir ríkisins á landsbyggðinni.
Sjómenn og sjávarútvegurinn
Fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi, sjómenn og fiskvinnslufólk
Starfsfólk sveitarfélaga og stofnanir
Fyrir starfsfólk sveitarfélaga, sveitarfélög og stofnanir þeirra á landsbyggðinni.