Algengar spurningar um styrki Sjómenntar til fyrirtækja og einstaklinga.
Frumrit reiknings á þínu nafni og staðfestingu á greiðslu úr heimabanka. Fyrir nám erlendis þarf einnig sundurliðaða kostnaðarskiptingu og þýðingu á ensku eða íslensku.
Áunninn réttur helst óbreyttur við flutning milli aðildarfélaga hinna fræðslusjóðanna, í fæðingar-/foreldraorlofi og hjá atvinnuleitendum, svo lengi sem félagsgjöld eru greidd. Í tímabundnu hléi af vinnumarkaði helst rétturinn í allt að 24 mánuði; hættir þú alfarið að greiða til félagsins helst rétturinn í 3 mánuði. Ellilífeyrisþegar í aðildarfélögum SSÍ halda réttinum í allt að 24 mánuði.
Já, og hjá Sjómennt er sá aukni réttur hærri en almennt gengur og gerist: allt að kr. 260.000 hafi rétturinn ekki verið nýttur í 2 ár, eða allt að kr. 390.000 eftir 3 ár, fyrir eitt samfellt nám eða námskeið.
Já, sé umsókn hafnað af stéttarfélaginu getur þú vísað henni til stjórnar Sjómenntar til endanlegrar afgreiðslu.
Þú missir rétt til styrks í 36 mánuði, þarft að endurgreiða styrkinn með dráttarvöxtum, og málið getur verið kært til lögreglu.
Launakostnaður fyrirtækja, veitingar og bókakaup á námskeiðum eru aldrei hluti af þeim kostnaði sem sjóðurinn styrkir.
Sé styrks ekki vitjað innan árs frá dagsetningu styrktarloforðs er hann afskráður og felldur niður.
Já, að hámarki kr. 40.000 á kennslustund.
Já, þarfagreiningar á fræðslu innan fyrirtækja eru styrktar um 90%, í hlutfalli við þann starfsmannafjölda sem tilheyrir stéttarfélögum innan SGS.