Þróunar- og símenntunarsjóður starfsmanna ríkisins á landsbyggðinni. Styður stofnanir og einstaklinga í starfsþróun.
Ríkismennt SGS er þróunar- og símenntunarsjóður starfsmanna ríkisins á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands (SGS). Sjóðurinn tók formlega til starfa 1. júní 2005.
Markmið sjóðsins er annars vegar að efla símenntun starfsmanna og hins vegar að auka möguleika stofnana á að þróa starfsvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til stofnana á hverjum tíma.
Hlutverk
Sjóðurinn skiptist í tvær deildir og sinnir hlutverki sínu með eftirfarandi hætti:
Þróunar- og stofnanadeild
• Veitir styrki til fræðsluverkefna hjá þeim stofnunum og vinnuveitendum sem í sjóðinn greiða
• Veitir styrki til fræðsluverkefna hjá þeim stéttarfélögum sem að sjóðnum standa
• Fjármagnar þau verkefni sem sjóðsstjórn skipuleggur
Starfs- og símenntunardeild
• Veitir styrki til einstaklinga, félagsmanna aðildarfélaganna, til þess að þeir geti átt kost á að sækja nám/námskeið með vinnu án verulegs kostnaðar
Samstarfssamningur Ríkismenntar og Fræðslusetursins Starfsmenntar
Félagsmenn í aðildarfélögum innan SGS geta sótt námskeið sem Fræðslusetrið Starfsmennt heldur vítt og breitt um landið. Ríkismennt greiðir skv. samningnum fyrir þátttöku almennra starfsmanna ríkisstofnana sem heyra undir sjóðinn.