Allir sjóðir
Fræðslustjóri að láni
Verkefnið byggist á að lána mannauðsráðgjafa til vinnustaða, sérhæfðum í vinnustaðafræðslu og óformlegri menntun.
Ráðgjafinn fer yfir fræðslu- og þjálfunarmál vinnustaðarins, dregur fram það sem vel er gert, gerir eða dýpkar greiningu á þörfum hans og samhæfir við önnur námskeið eða viðurkenndar fræðsluleiðir innan óformlega fræðslukerfisins.
Dæmi um viðurkenndar fræðsluleiðir/námsleiðir er hægt að kynna sér á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins undir upplýsingum um námskrár.