Menntadagur atvinnulífsins var haldin í 10 sinn 14.feb. sl. Fundurinn í ár bar yfirskriftina Færniþörf á vinnumarkaði
Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í fræðslu- og menntamálum. Bláa lónið er Menntafyrirtæki ársins og Vaxtarsprotar OR hljóta Menntasprotann 2023. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri SA afhentu verðlaunin.
Á vef www.sa.is má lesa nánar um Menntadag atvinnulífsins og viðurkenningahafana.
Að deginum standa Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þess. Landsmennt styrkti viðburðinn eins og undanfarin ár ásamt fleiri fræðslusjóðum atvinnulífsins.


