Landsmennt veitir nýsköpunar-og þróunarstyrk í „Gervigreind fyrir alla“
Stjórn Landsmenntar, ásamt stjórn Starfsmenntasjóðs verslunar-og skrifstofufólks, hafa samþykkt styrkveitingu í verkefni Skákgreindar ehf. „Gervigreind fyrir alla“
Sjóðirnir styrkja verkefnið um 4 milljónir hvor um sig og er styrkveitingin hluti af mótframlagi til verkefnisins vegna styrktarsamnings Skákgreindar við Vöxt hjá Tækniþróunarsjóði Rannís. Unnið hefur verið að verkefninu í nokkur ár og naut það Sprotastyrks frá Tækniþróunarsjóði Rannís fyrir ári síðan. Það eru oft fyrstu skref nýsköpunarverkefna hjá Tækniþróunarsjóði Rannís, veittir eru tveggja ára Sprotastyrkir og síðan geta verkefnin farið yfir í Vaxtarstyrk með samningi til tveggja ára til viðbótar. Skákgreind er einnig með Erasmus Plus styrk, í hlutverki aðal umsækjanda og verkefnisstjóra fyrir skylt verkefni, þ.e. aðlögun að menntaskólanemendum. Þar eru samstarfsaðilar Háskólinn í Reykjavík, Háskóli Íslands og Háskólinn í Bielefeld í Þýskalandi. Verkefnið er þverfaglegt á sviði gervigreindar, menntavísinda og sálfræði.
Um er að ræða afar spennandi verkefni sem stjórn Landsmenntar bindur miklar vonir við að muni nýtast markhópi sjóðsins til framtíðar. Tilgangur og innihald þess er tvíþætt:
Myndin með fréttinni er fengin hér


